Blogghressleiki

þessi nýja vefsíða mín hefur endurvakið skrifgleði mína svo um munar. þetta er líklega eins og framkvæmdagleði þeirra sem byggja sér hús.
Áður en ég logga mig út og fer á backgammon æfingu þá eru nokkur atriði sem ég þarf að koma frá mér.

í fyrsta lagi þá er á leiðinni ný útgáfa af Internet Explorer. Eftir fyrri yfirlýsingar um að ný útgáfa af IE kæmi ekki út fyrr en með Windows Longhorn hefur Gates undið sínu kvæði í kross og ætlar eitthvað að kíkja betur á þetta internet. það sem pirrar mig hins vegar óstjórnlega er að CSS stuðningur verður væntanlega bara einhver plástrun frá seinustu útgáfu og engin ástæða til að gera sér nokkrar væntingar um almennilegan CSS2 stuðnin.
Framleiðendur Opera vafranns eru reyndar með góða hugmynd í gangi með það að markmiði að berja smá glóru í kollinn á MSFT þursinum.
í versta falli þýðir þetta að ég þarf að setja upp fjórðu útgáfuna af IE á vélinni minni þar sem staðan er sú í dag að ef maður er að vinna með útlit á vefsíðu þá þarf að prófa hana í IE 5, IE5.5 og IE 6 þar sem þessir vafrar túlka blessaðan STAðALINN allir á sinn hátt.

í öðru lagi þá vill ég benda öllum sem hafa legið á bakinu á mér að laga bókunarvélina á Icelandair vefnum á það að í dag var sett í loftið ný útgáfa af ferlinu.
Fyrir þá sem ekki vita, þá er Icelandair að nota bókunarkerfi frá Amadeus sem er huge batterí með lager allra helstu flugfélagana hýst á stórum vefþjónabóndabæ.
Ég hef sem sagt lítið með ferlið að gera, en þessi nýja útgáfa hefur verið í prófun seinustu daga og er nú komin í loftið. Hún býður upp stórbætt viðmót þar sem hægt er að sjá ódýrustu fargjöldin í nágrenni við þær dagsetningar sem þú hefur í huga. Einnig er svo boðið upp á það að velja flug tímasett yfir daginn eftir því hversu miklu þú villt spandera í miðann.
þetta ætti að létta lund þeirra sem ferðast mikið.
það á eitthvað eftir að fiffa til útlitið og svona, en þetta er alveg mögnuð uppfærsla þó ég segi sjálfur frá.

í þriðja lagi vill ég benda sérstaklega á tvær vefsíður.
Hugi er víst búinn að vera að blogga í einhvern tíma án þess að láta kóng né prest vita af því. Hann er magnaður penni og ég mæli með ferðasögunum neðarlega á síðunni hans.
Sigga systir er mikill snillingur og hefur heiðurinn að því að vera hæst í referals yfir á þessa síðu. Hún hefur ferðast heiminn þverann og endilangann og núna er hún að færa okkur fréttir beint frá Eþíópíu.