Eftir langa helgi tekur við stutt vika

Maggi var steggjaður á föstudaginn. Rændum honum í vinnuútkalli upp úr hádeginu og tókum þéttan pakka sem teigðist langt inn í laugardaginn. Fórum meðal annars á skauta í gufu og fleira. Ég svaf bara meira og minna laugardaginn og safnaði kröftum fyrir tónleikana um kvöldið. Giggið var í stutt máli alger snilld og við spiluðum frá 11 til 2 í dúndrandi stemmningu í Iðnó. þaðan hélt ég í þrítugs afmæli Kidda Aspelund þar sem fólk var komið töluvert lengra en ég í djamminu. Ég gerði mitt besta til að ná mannskapnum og fór meðal annars með hópnum á Grand rokk. Ég var samt orðinn helvíti útkeirður og var kominn heim frekar snemma. Sunnudagur fór svo í slen og steik hjá foreldrunum. Stefni á að kíkja á frumburð Kalla og írisar í kvöld með Karó, Kidda og Helga. Síðan er bara verið að setja upp plan fyrir páskahelgina. Brúðkaup Magga og Sunnu ber þar einna hæst. Svo er bara spurning hvort maður skelli sér norður í framhaldinu eða á festivalið á ísafirði.