Klipp og stuð

Ég skelti mér bara í klippingu í tilefni hækkandi sólar. Myndirnar eru í lyftuseríunni vinsælu.
þeir sem eru með athyglisgáfurnar í lagi sjá að það er nokkur munur á þessari syrpu minni og svo syrpunni hans Hjartar. Fyrir þá sem þurfa vísbendingu, þá er Hjörtur í alls kyns múderingum en ég er alltaf eins klæddur.
Seinustu mánuði hef ég nefnilega með góðum árangri komið í gagnið All Black dress kódinu mínu. það tók smá tíma að koma sér upp þremur settum af góðum svörtum buxum og rúllukragabolum. Svo ekki sé nú talað um skilningsleysi afgreiðslufólks yfir þessum magninnkaupum.
Bunki af svörtum sokkum og slatti af svörtum nærbuxum var nokkurnvegin gefið mál. Svo voru það bara jakki og skór.
Vopnaður þessum fataskáp get ég gripið í vinnufötin á morgnana algjörlega hugsunarlaust út frá því hvort litirnir passi saman o.s.frv.
þvottadagar eru jafn átakalausir að því leiti að þetta fer bara allt í sömu vél og ekkert vesen.
Eini gallinn er að nú fer hitastig hækkandi og þetta er ekkert spes svona í mestu sólinni.
Spurning hvort ég ætti að fara í að útfæra All White sumarlínuna….
Annars eru úrslit í Ólympíuleikum TM Sotware í kvöld og þar verður slett úr klaufunum.
Eins er jafnvel pæling að kíkja á Vínil og Ske á Grand Rokk annaðkvöld.
Nóg að gerast.
Exciting Times.