Mánudagsslen og meira um nýja vefinn
þessi helgi var tekin með trompi.
Úrslit í Ólympíuleikum fóru þannig að Vigor nágrannar okkar rétt höfðu af okkur fyrsta sætið með einu stigi. þetta var eins og í amerískri bíómynd og úrslitin voru ekki klár fyrr en eftir seinastu keppnisgreinina sem var hjómsveitakeppni. þar lentum við í öðru sæti með okkar útgáfu af Hey ja eftir Outkast. Ég var á trommum, Eggert bassaleikari í Maus á bassa (eðlilega) og Markús vinnufélagi á Gítar. Söngur var svo í hönum Hjalta og bakraddakórsins.
Hefðum við náð fyrsta sæti þá hefði titillinn verið okkar annað árið í röð. Ojæja, það koma leikar eftir þessa.
Við vorum svo í eftirpartýjum um allt hús fram til 3 og þá var haldið í bæinn.
Laugardagurinn var samt ekki vannýttur. Fór í smá gleði til Markúsar vinnufélaga og svo á tónleika á Grand Rokk með Pétri frænda. þar áttu Vínill og Ske að troða upp, en fljótlega eftir að við mættum komumst við að því að Vínill hafði afboðað vegna þess að þeir fengu ekki að hafa sinn hljóðmann. Ekki laust við að maður hafi stimplað það sem stjörnustæla, en þegar Ske byrjaði svo að spila kom greininlega í ljós að þetta var réttmæt afsökun hjá Vínil. Hljóðblönduninn var ömurleg og ekkert heyrðist í söngnum meirihlutan af tónkeikunum. Bandið var samt þétt eins og áður og bara leiðinlegt að lenda í svona slæmu mixi. Kíktum aðeins á ölstofuna en vorum komnir í háttinn fyrir 3.
Sunnudagurinn fór í fjölskildubíltúr með Kidda og Karólínu um suðurlands undirlendið.
Svona á meðan ég er að skilgreina hvernig ég ætla að nota þessa nýju síðu mína þá geri ég kröfu á þá sem vilja skilja eftir comment að þeir stofni notanda. það gæti jafvel þróast þannig að þessi notandi verði notaður fyrir aðgangsstýrð svæði á vefnum og einhverja skemmtilega fídusa seinna meir. Ein hugmyndin er að parsa færslurnar eftir nöfnum og linka sjálfkrafa í heimasíður þeirra sem eru skráðir notendur eða myndir af þeim.
Eins er ég að prófa mig áfram með Spurlin hérna hægra megin. þetta eru s.s. sniðugar slóðir sem ég rekst á í daglegu vafri

