Ný heimasíða

það hlaut nú að koma að því að ég uppfærði þennan blessaða vef minn. Eftir að hafa skoðað nokkur kerfi sá ég að Mambo byði mér upp á quickest time to market. þetta er magnað PHP open source kerfi sem er ólíkt öðrum svona kerfum sem ég hef skoðað  tiltölulega modular og vel skrifað.
Ég mun líklega dunda mér við að stilla þetta til, bæta við fídusum og byggja upp þetta svæði þegar ég hef tíma til…. eða ekki. Á einhverjum tímapunkti mun ég líka færa skrif mín úr gamla grunninum yfir í þennann.
24.02.2005 12:51
Hljónstræng Var að koma af æfingu með Buxunum hans afa.
Ég er að fara að spila í Iðnó á laugardaginn í afleysingum fyrir trommuleikarann sem spilar oftast á banjó þegar banjóleikarinn kemst ekki og þá fer ég á trommurnar. En núna kemst s.s. tommuleikaraafleysingabanjóleikarinn ekki heldur þannig að það eru afleysingarmenn bæði á trommum og banjó.
þetta verður svaka gigg og er liður í fjáröflun fyrir meik í útlöndum. Ég er sem sagt að fara með þessu bandi í víking til London eins og Stuðmenn. Við erum samt bara að fara að spila í einhverju afmæli í litlu bresku þorpi. það hljómar spennandi.
það sem er líka spennandi er að Sammi úr Jagúar verður að djamma með okkur á laugardaginn.
Aldrei of seint að meika það.
Nýtt í heimasíðuþróun er dagatalið hérna hægra megin.
þeir sem eru skráðir notendur geta sett inn afmælið sitt eða skedjúlerað mig á fundi.
Sjáum hvernig það þróast. Á samt eftir að laga til útlitið á því og svona.