Nýtt útlit
Ég er nú aðeins að tapa mér með þessa nýju heimasíðu…
Nokkura ára innilokunarkennd í vefumsjónakerfi sem ég gat ekki átt við er að brjótast út núna. það skýrir það hvers vegna ég sit í vinnunni kl 2 og er að rembast við að hreinsa út töflukóða og gera fallegt sniðmát sem samanstendur bara af einföldu töflulausu HTML-i og CSS-i.
Framsóknargræni fékk að víkja fyrir sjálfstæðisbláum fyrir þá sem hugsa pólitík í litum. Appelsínuguli stendur líklega fyrir íhaldið líka frá gamla tímanum og gamla vefnum.
Látum þetta gott heita í bili.

